Skilmálar þjónustu

Síðast uppfært: október 2026

1. Um þjónustuna

REKTRA er hugbúnaðarþjónusta (SaaS) fyrir íslenska verktaka og þjónustufyrirtæki til að halda utan um verkefni, tímaskráningar, kvittanir og kostnað.

Rektra er rekið af Reyni Óskarssyni.

2. Áskrift og greiðslur

Rektra er mánaðarleg áskriftarþjónusta. Greiðslur eru innheimtar í gegnum örugga áskriftargreiðsluþjónustu.

Við skráningu hefst 14 daga frír prufutími. Ef þú segir ekki upp á prufutímanum hefst áskrift að honum loknum og fyrsti reikningur er sendur. Þú getur sagt upp hvenær sem er.

Uppsögn

Þegar þú segir upp lokast aðgangur þinn að Rektra um leið, ekki við lok greiðslutímabilsins. Áskriftin stöðvast og engir frekari reikningar eru sendir. Reikningar sem þegar hafa verið sendir standa og hlutfallsleg endurgreiðsla er ekki veitt.

Gögnunum þínum verður ekki eytt við uppsögn. Aðgangurinn lokast þó um leið og sagt er upp, svo mælt er með að þú sækir gögnin þín áður en þú segir upp áskriftinni. Þú getur valið áskrift aftur hvenær sem er.

3. Notendareikningur

Þú berð ábyrgð á að vernda innskráningarupplýsingar þínar. Þú samþykkir að nota þjónustuna eingöngu í löglegum tilgangi og í samræmi við íslensk lög.

4. Fjárhagsgögn

REKTRA er verkfæri til að skrá og skipuleggja fjárhagsgögn. Þjónustan veitir ekki bókhalds-, skatta- eða endurskoðunarráðgjöf.

  • Þú berð fulla ábyrgð á nákvæmni gagna sem þú skráir.
  • Útreikningar (þ.m.t. VSK) eru eingöngu til upplýsinga.
  • Við mælum með að notendur ráðfæri sig við bókara eða sérfræðing varðandi bókhald og skattskil.

5. Takmörkun ábyrgðar

REKTRA ber ekki ábyrgð á:

  • Tjóni sem hlýst af notkun eða vanhæfni til notkunar þjónustunnar.
  • Gagnatapi vegna tæknilegra bilana eða ófyrirsjáanlegra atvika.
  • Fjárhagslegum ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli gagna úr þjónustunni.

6. Hugverkaréttindi

Allt efni og hugbúnaður REKTRA er eign REKTRA. Gögn sem notendur skrá eru þeirra eign og notendur geta óskað eftir afhendingu eða eyðingu gagna.

7. Uppsögn

Notandi getur hætt notkun hvenær sem er. REKTRA áskilur sér rétt til að loka aðgangi ef skilmálar eru brotnir. Við uppsögn má óska eftir eyðingu gagna samkvæmt persónuverndarstefnu.

8. Lagaval

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ágreiningsmál skulu lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.

9. Hafa samband

Fyrirspurnir vegna skilmála: info@rektra.is